Letra de Flugufrelsarinn
Hamagangur, ég þusti niður að læknum Bjargvættur Ég gerði skip tilbúið og fór með litla bæn Því ég var hræddur Sólin skein og lækurinn seytlaði Sóley, sóley flugurnar drepastEn í dag á ég að bjarga sem flestum flugum Með spotta í skip ég er með í hvorri hendi akveðinn Ég kasta þeim út í hylinn og reyni Að hala flugurnar inn áður En seiðin ná til þeirra þar sem þær berjast Við strauminn og vatniðÞannig líður dagurinn Sjálfur kominn um borð, var farinn að berjast við bæjarlækinn Sem hafði þegar deytt svo margarÉg næ ekki andanum og þyngist við hverja öldu Mér vantar kraftaverk Því ég er að drukkna syndir Ég reyni að komast um borðÉg dreg í land og bjarga því sjálfum mér aftur Aftur á bakkann Á heitan stein ég legg mig og læt mig þorna aftur Ég kasta mér út í hylinn og reyni Að hala flugurnar inn áður En seiðin ná til þeirra þar sem þær berjast Við strauminn og vatniðGustur, allur rennblautur Frakkur finnur hvernig báturinn er kominn úr mesta straumnum Og landið smám saman nálgaðistHann er bæði um borð í Sjó og landi bjargandi Flugunum sem farast hér Þó sér í lagi sjálfum sér Eilíft stríð og hvergi friður En það verður einhver að fórna sér Dagarnir eru langir